top of page

 Skilmálar

Skilmálar Skín og Bón ehf.

Gilda frá: 22/04/2026 

Þessir notkunarskilmálar („skilmálar“) gilda um alla notkun á þjónustu Skín og Bón ehf., kt. 660225‑1020, Dalshrauni 8, 220 Hafnarfirði („fyrirtækið“, „við“, „okkur“), þar með talið:

  • heimsóknir á þjónustustöðvar okkar

  • notkun á vefsíðu

  • notkun á appi

  • kaup á þjónustu og áskriftum

  • notkun sjálfvirkrar bílnúmeralestrar og myndavélavöktunar

Með því að nota þjónustu okkar samþykkir þú þessa skilmála.

​

1. Þjónusta

Skín og Bón ehf. Kt; 660225-1020 á og rekur bílaþvottastöðvar og tengda þjónustu.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta þjónustu, opnunartímum, verðskrá eða aðgengi að þjónustu án fyrirvara.

​

2. Notkun apps og rafrænna þjónusta

App Skín og Bón gerir notendum kleift að:

  • kaupa þjónustu

  • skoða stöðu þvotta

  • fá tilkynningar

  • sjá viðskiptasögu

  • tengja bílnúmer við þjónustu

​

Notendur bera ábyrgð á:

  • réttri skráningu upplýsinga

  • aðgangsorðum og öryggi síns aðgangs

  • að uppfæra upplýsingar eftir þörfum

Við getum lokað eða takmarkað aðgangi ef grunur leikur á misnotkun.

​

3. Greiðslur og áskriftir

Greiðslur í appi fara fram í gegnum örugga greiðslumiðlun.
Við geymum ekki greiðslukortaupplýsingar.

Ef boðið er upp á áskriftarþjónustu gildir eftirfarandi:

  • áskrift endurnýjast sjálfkrafa nema henni sé sagt upp

  • til að segja upp áskrift, er það gert í appinu með því að smella á "cancel subsciption" í subscription and cars, Manage subscritions

  • uppsögn tekur gildi við næsta tímabil

  • engin endurgreiðsla er veitt fyrir ónotaða þjónustu, undir engum kringumstæðum

  • sanngjörn notkun, áskrift fylgja 10 þvottar á mánuði

​

4. Bílnúmeralestur og sjálfvirk þjónusta

Þjónustustöðvar Skín og Bón nota bílnúmeralestrarbúnað (ANPR) til að:

  • auðkenna ökutæki

  • virkja þjónustu sem keypt er í appi

  • skrá komu og brottför

  • tryggja réttmæta notkun þjónustu

Með því að nota þjónustuna samþykkir þú þessa vinnslu.

​

5. Myndavélavöktun

Á svæðinu er myndavélavöktun í öryggisskyni.
Upptökur geta sýnt:

  • ökutæki

  • bílnúmer

  • einstaklinga á svæðinu

Upptökur eru varðveittar í takmarkaðan tíma og aðeins notaðar í öryggis- og rekstrartengdum tilgangi.

​

6. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar

Skín og Bón ehf. ber ekki ábyrgð á:

  • tjóni sem hlýst af röngum upplýsingum sem notandi gefur upp

  • tjóni sem rekja má til bilana í búnaði, netsambandi eða þjónustuaðilum

  • tjóni sem verður vegna rangrar notkunar á þjónustu eða búnaði

Við berum ábyrgð á þjónustu okkar í samræmi við íslensk lög.

​

7. Réttur til að hafna þjónustu

Við áskiljum okkur rétt til að hafna þjónustu ef:

  • ökutæki er í ástandi sem gæti valdið tjóni

  • hegðun viðskiptavinar er óásættanleg

  • grunur leikur á misnotkun eða svikum

​

8. Persónuvernd

Vinnsla persónuupplýsinga fer fram samkvæmt:

  • lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga

  • persónuverndarstefnu Skín og Bón ehf.

Persónuverndarstefnan er því hluti þessara skilmála.

​

9. Hugverkaréttur

Allt efni á vef og í appi Skín og Bón, þar með talið:

  • texti

  • myndir

  • grafík

  • vörumerki

  • hugbúnaður

er eign Skín og Bón ehf. og má ekki afrita eða dreifa án skriflegs leyfis.

​

10. Breytingar á skilmálum

Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra þessa skilmála hvenær sem er.
Breytingar taka gildi við birtingu á vefnum eða í appinu.

​

11. Lög og varnarþing

Skilmálarnir lúta íslenskum lögum.
Ágreiningur skal sættur fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

​

12. Samskiptaupplýsingar

Skín og Bón ehf.
Dalshraun 8
220 Hafnarfjörður
Netfang: skin@skin.is

bottom of page